Gagnlegar upplýsingar¶
Námsefnið¶
Aðallesefni námskeiðsins er bók Ragnars Sigurðssonar sem þið finnið í námsefnismöppunni á UGLU.
Fyrirlestrar¶
Fyrirlestrar verða á mánudögum 8:20–9:50 og á miðvikudögum 10:00–11:30. Í fyrirlestraáætlun og á dæmablöðunum er sagt nánar frá efni fyrirlestra hverrar viku og vísað á viðeigandi efnisgreinar í kennsluefni. Að mestu verður fylgt þeirri efnisröð sem er í fyrirlestranótum Ragnars. Í fyrirlestrum mun aðeins gefast tími til að fara yfir helstu atriði námsefnisins og verðið þið sjálf að kynna ykkur mikinn hluta af námsefninu upp á eigin spýtur. Yfirferð námsefnisins er hröð og farið er yfir mikið efni.
Dæmatímar og vinnustofur¶
Sameiginlegur dæmatími með dæmareikningi á töflu verður á mánudögum 15:50–17:20 (nema í fyrstu vikunni). Í námskeiðinu er einnig boðið upp á vinnustofur síðdegis á miðvikudögum, 15:00-16:30 og fimmtudögum, 15:50-17:20 (nema í fyrstu vikunni) sem eru hugsaðar þannig að þið getið komið og fengið aðstoð við dæmareikning eða fengið nánari útskýringar á atriðum sem hafa vafist fyrir ykkur.
Skiladæmi¶
Á misserinu eru skiladæmi, alls 8 talsins sem sett eru fyrir samkvæmt kennsluáætlun í viðauka. Ætlast er til að lausnir séu sjálfstæðar og afritaðar lausnir, hvorki frumrit né afrit eru teknar gildar. Þó eruð þið að sjálsögðu hvött til að skiptast á skoðunum og hugmyndum við að leysa verkefnin.
Athugið
Til að fá próftökurétt þarf nemandi að skila dæmum í að minnsta kosti 5 af 8 skiptum.
Til að fá skil metin þarf að hafa leyst í hvert skipti að minnsta kosti helming dæmanna (við munum ekki gefa einkunn fyrir skiladæmi en þið getið hugsað þetta þannig að þið þurfið að fá a.m.k. 5 fyrir skiladæmi til að þau gildi) og frágangur þarf að vera sómasamlegur. Þið eigið að miða við að úrlausnin sé þannig að jafningjar ykkar ættu að geta lesið og skilið hana frá upphafi til enda án hjálpargagna. Takið vinsamlegast tillit til eftirfarandi atriða
- Merkið lausnina ykkar efst hægra megin á forsíðu.
- Skrifið upp dæmatextann og tilgreinið hvar lausnin byrjar.
- Hafið útreikninga og röksemdafærslur í vel uppsettum texta og hafið í huga að stærðfræðitexti lýtur sömu reglum og venjulegt skrifað mál, t.d. byrja setningar á stórum staf og enda á punkti. Stærri formúlur er gott að afmarka sérstaklega en stundum fer betur á því að hafa smærri formúlur inni í texta. Dæmi:
Athugið
Fallið \(f(x) = \sin(x)/x^2\) hefur afleiðuna
Takið eftir að málsgreinin hefst á stórum staf og endar á punkti, jafnvel þótt formúla sé í lok málsgreinar. Smærri formúlan er inni í texta en sú stærri er afmörkuð sérstaklega.
Námsmat¶
Tvisvar á misserinu verða próf sem gilda 15% hvort en þó aðeins til hækkunar. Stefnt er að því að hafa prófin á dagsetningum sem koma fram í kennsluáætlun í viðauka. Þá verður prófað úr lesnu efni, skilgreiningum og setningum (u.þ.b. 25%) og jafnframt úr skiladæmunum (u.þ.b. 75%).
Undir lok námskeiðs er eitt stórt skilaverkefni þar sem fengist er við töluleg verkefni. Verkefnið gildir 20% af lokaeinkunn en þó aðeins til hækkunar. Nauðsynlegt er að fá einkunnina 5 eða hærra í verkefninu til að ljúka námskeiðinu. Nemendur vinna 2-3 saman í hóp að verkefninu. Nánari fyrirmæli verða gefin síðar.
Í lok námskeiðsins er þriggja tíma skriflegt próf sem gildir 50%. Nauðsynlegt er að þið fáið a.m.k. 5 í lokaprófinu til að standast námskeiðið. Engin hjálpargögn eru heimil í lokaprófinu, nema hvað prófverkefni fylgir formúlublað sem má finna á UGLU í námsefnis möppunni.
Tölvunotkun¶
Í Stærðfræðigreiningu IV er hluti umfjöllunarefnisins tölulegar aðferðir við að leysa hlutafleiðujöfnur og mun því reyna meira á notkun tölvukerfa en í fyrri stærðfræðigreiningarnámskeiðum. Við munum notast við Octave/Matlab í stærri tölulegum verkefnum.
Í dæmareikningi getur verið gagnlegt að nota aðstoð reiknikerfa til að sannreyna niðurstöður og teikna myndir. Forritin Octave/Matlab geta hentað vel til þess og einnig getur verið gagnlegt að nota Geogebra, Sage eða Wolfram alpha. Athugið að hægt er að keyra létta reikninga í Octave í vafra http://octave-online.com. Athugið samt að á prófi þurfið þið að reikna sjálf án aðstoðar vasareikna og tölvukerfa.
Að taka námskeiðið í annað sinn¶
Þau sem sátu námskeiðið í fyrra og unnu sér inn próftökurétt þá halda próftökuréttinum en eldri próftökuréttur gildir ekki. Vinsamlegast sendið tölvupóst á kennara ef þið viljið halda próftökuréttinum frá því í fyrra. Einkunnir úr miðmisserisprófum/ vetrareinkunn gilda ekki frá því í fyrra. Við hvetjum ykkur eindregið til að taka þátt í námskeiðinu af fullum krafti og skila dæmum þó svo að þið hafið eldri próftökurétt.
Viðtalstímar kennara og fyrirspurnir¶
Kennarar námskeiðsins eru Sigurður Örn Stefánsson (fyrri hluti) og Valentina Giangreco M Puletti (síðari hluti) en þau eru með skrifstofur 330 og 309 á 3. hæð í Tæknigarði. Viðtalstímar við kennara eru samkvæmt samkomulagi.
Við munum notast við Piazza vefinn þar sem þið getið spjallað um efni námskeiðsins, skipulag, heimaverkefni og fleira. Ég legg áherslu á að þetta er hugsað sem vettvangur fyrir ykkur til að ræða saman og þið getið ekki treyst því að öllum fyrirspurnum verði svarað þar samstundis.
Mikilvægt
Þar sem mjög margir nemendur eru í námskeiðinu biðjum við ykkur um að íhuga áður en þið sendið tölvupóst hvort svarið við spurningunni sé að finna í þessu skjali eða hvort þið gætuð borið spurninguna fram í fyrirlestri, dæmatíma, stoðtíma, á Piazza vefnum eða í viðtalstíma.